Nú er tækifærið fyrir byrjendur að læra köfun. Við erum að fara af stað með námskeið til PADI Open Water réttinda sem eru alþjóðleg réttindi í köfun. Köfunarnám er ævintýri líkast sem lifir með fólki út ævina.

Þægilegt og spennandi

Námið skiptist í bóklegan hluta, sem þú getur tekið í fjarnámi eða mætt í tíma, og verklegan sem samanstendur af 1 sundlaugarköfun, 3 ferksvatnsköfunum og 2 sjóköfunum.

Nám fyrir alla

Við sinnum þörfum hvers og eins af miklum metnaði og veitum sérsniðna aðstoð á öllum stigum námsins eftir þörfum.

Ódýrt og vandað

Hjá okkur fá nemendur bækur og lesefni til eignar og allan köfunarbúnað á námskeiðinu að láni. Við bjóðum nemendum að dreifa greiðslum vaxtalaust í 6 mánuði sé þess óskað sem gerir lítinn 10 þúsund kall á mánuði.

Gríptu tækifærið

Hafðu samband við Héðinn hjá Köfunarskólanum í síma 699-3000 eða hedinn@kafarinn.is og skráðu þig á námskeið.